2017-05-15 17:18:52 CEST

2017-05-15 17:18:52 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti Englanti
Orkuveita Reykjavíkur - Ársreikningur

Jákvæð niðurstaða í rekstri OR á fyrsta ársfjórðungi


Reykjavík, 2017-05-15 17:17 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Niðurstaða reksturs
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) á fyrsta fjórðungi 2017 var svipuð og undanfarin ár.
Hækkað mat á verðmæti raforkusölusamninga til langs tíma sem tengdir eru
álverði skapaði fyrirtækinu hinsvegar mikinn bókfærðan hagnað, en hækkunin nam
5,3 milljörðum króna. „Þetta er fugl í skógi en ekki í hendi,“ segir Bjarni
Bjarnason um mikinn bókfærðan hagnað í árshlutauppgjöri fyrsta ársfjórðungs
2017, sem samþykktur var af stjórn OR í dag. Reiknaður tekjuskattur OR hækkar
verulega milli ára og nemur 2,3 milljörðum króna fyrstu þrjá mánuði ársins. 

Stöðugleiki í rekstri

Um síðustu áramót lækkaði verð á hluta þjónustu OR samstæðunnar. Innan hennar
eru Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur, auk móðurfélagins.
Tekjur samstæðunnar fyrstu þrjá mánuði ársins 2017 jukust frá sama tímabili
2016 um 487 milljónir króna, þrátt fyrir lækkun á gjaldi fyrir
rafmagnsdreifingu og kalt vatn um áramótin. Mestu munar um auknar tekjur Orku
náttúrunnar. Rekstarkostnaður samstæðunnar jókst um 59 milljónir á sama tíma. 

Lykiltölur fjármála á vef OR

Samhliða árshlutauppgjörum hefur Orkuveita Reykjavíkur gefið út lykiltölur
fjármála. Þær er nú allar að finna á vef OR á slóðinni
https://www.or.is/fjarmal/fjarmalafrettir/lykiltolur. Á vefnum er einnig að
finna árshluta- og ársreikninga OR og dótturfyrirtækja fyrir síðustu ár. 

Bjarni Bjarnason, forstjóri

Lykilatriði í þessu uppgjöri er að rekstrarkostnaður vex óverulega. Með því
eigum við betur með að halda verði fyrir þjónustuna niðri og greiða eigendum
sanngjarnan arð. Sú mikla tekjufærsla sem gerð er vegna hækkunar á álverði
fyrstu mánuði ársins og skilar miklum hagnaði á tímabilinu er fugl í skógi en
ekki í hendi. Þessir peningar eru langt í frá komnir í kassann. Við vonumst
auðvitað til að hækkun  á áli sé varanleg og að raforkusala til stórnotenda
skili auknum tekjum. Sú þróun er hinsvegar ekki í okkar höndum. Við hjá OR og
dótturfélögunum einbeitum okkur að því mikilvæga hlutverki sem okkur hefur
verið falið af trúmennsku og hagsýni. 

Rekstraryfirlit stjórnenda

Fjárhæðir í milljónum króna  F1 2013  F1 2014*  F1 2015  F1 2016  F1 2017
-------------------------------------------------------------------------
                                                                         
-------------------------------------------------------------------------
Rekstrartekjur                10.650             11.110   11.336   11.822
-------------------------------------------------------------------------
Rekstrarkostnaður            (3.361)            (3.880)  (4.079)  (4.138)
-------------------------------------------------------------------------
þ.a. orkukaup og flutningur  (1.441)            (1.868)  (1.635)  (1.701)
-------------------------------------------------------------------------
                                                                         
-------------------------------------------------------------------------
EBITDA                         7.288              7.230    7.257    7.685
-------------------------------------------------------------------------
Afskriftir                   (2.234)            (2.399)  (2.406)  (2.384)
-------------------------------------------------------------------------
Rekstrarhagnaður EBIT          5.054              4.831    4.850    5.301
-------------------------------------------------------------------------
                                                                         
-------------------------------------------------------------------------
Afkoma tímabilsins             4.166              3.276    2.535    6.039
-------------------------------------------------------------------------
                                                                         
-------------------------------------------------------------------------
Sjóðstreymi:                                                             
-------------------------------------------------------------------------
Innleystar vaxtatekjur            88                172        2       59
-------------------------------------------------------------------------
Greidd vaxtagjöld            (1.113)              (989)    (679)    (764)
-------------------------------------------------------------------------
Handbært fé frá rekstri        5.169              5.246    4.998    6.454
-------------------------------------------------------------------------
Veltufé frá rekstri            5.289              6.145    6.129    5.594
-------------------------------------------------------------------------
*Ekki var gert uppgjör F1 2014 vegna uppskiptingar OR.                   
--------------------------------------------------------------------------




         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason
         forstjóri
         516 6100