2014-04-03 13:13:31 CEST

2014-04-03 13:14:32 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Mosfellsbær - Ársreikningur

Mosfellsbær - Ársreikningur 2013


AFGANGUR AF REKSTRI MOSFELLSBÆJAR

Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2013 var lagður fram í bæjarráði í dag
og honum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn. 



Rekstur Mosfellsbæjar gekk vel á árinu 2013 og var rekstrarafgangur fyrir
fjármagnsliði  um 549 milljónir sem er um 8% af tekjum. Niðurstaðan er í
samræmi við fjárhagsáætlun. Að teknu tilliti til fjármagnsliða var afgangur af
rekstri bæjarins um 31 milljónir eða 0,4% af tekjum. 



Íbúar Mosfellsbæjar voru 9.075 um síðustu áramót og hafði fjölgað um 1,1% á
milli ára. 



Hófleg skuldsetning

Kennitölur úr rekstri bera vott um trausta stöðu bæjarsjóðs. Veltufé frá
rekstri eru 701 milljón sem eru 10% af rekstrartekjum. Eigið fé nemur 3.952
milljónum og er eiginfjárhlutfall 29%. Skuldaviðmið er 126% sem er vel innan
þess 150% hámarks sem kveðið er á um í lögum. 



83% af skatttekjum fara í fræðslu-, félags- og íþróttamál

Fræðslumál eru langstærsti málaflokkurinn en til hans runnu 2.679 milljónir á
árinu 2013 eða helmingur af skatttekjum. Til félagsþjónustu var veitt 1.112
milljónum og eru þar meðtalin málefni fatlaðs fólks. Íþrótta- og æskulýðsmál
eru þriðja stærsta verkefni bæjarins en til þeirra mála var varið um 633
milljónum. 



Mikil uppbygging í Mosfellsbæ

Um 1.664 milljónum var varið í framkvæmdir á árinu 2013 til þess að styðja við
þann vöxt og þá uppbyggingu sem er í sveitarfélaginu.  Stærstu framkvæmdirnar
voru bygging framhaldsskólans í Mosfellsbæ sem tók til starfa í ársbyrjun 2014,
bygging 30 rýma hjúkrunarheimilis sem vígð var sumarið 2013, bygging nýs
íþróttahúss, leikskóla og þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða. Á árinu var
verulegum fjármunum jafnframt varið í viðhald og endurbætur á skólahúsnæði og
íþróttaaðstöðu í bænum. 





Reikningurinn verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 9. apríl og til
síðari umræðu 23. apríl. 



Nánari upplýsingar veitir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 862 0012