|
|||
2009-06-30 11:56:20 CEST 2009-06-30 11:57:20 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirTilkynning vegna útgáfu íbúðabréfaÞann 20. apríl 2009 birti Íbúðalánasjóður endurskoðaða áætlun varðandi útlán, útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að gefa út íbúðabréf að upphæð 8-10 milljarða á öðrum ársfjórðungi ársins, en samtals nemur heildarútgáfa fjórðungsins 6,95 milljörðum króna að nafnverði. Sjóðurinn hefur ákveðið að ekki verði farið í frekari útboð íbúðabréfa á öðrum ársfjórðungi. Útlán sjóðsins hafa verið minni á öðrum ársfjórðungi en áður var gert ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu. Endurskoðaðar áætlanir sjóðsins verða birtar í lok 29. viku ársins 2009. |
|||
|