2008-05-09 14:08:31 CEST

2008-05-09 14:09:32 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Snæfellsbær - Ársreikningur

- Ársreikningur 2007


Miðvikudaginn 9. maí 2007 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2007 tekinn til fyrri
umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á
tveimur fundum í sveitarstjórn. Síðari umræða um ársreikningurinn verður
fimmtudaginn 15. maí n.k. 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók
gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert
ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við
ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu
leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar
á grundvelli þeirra. 

Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum reikningsskilaaðferðum. 

Ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2007 byggir á sömu
reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 1.356,4 millj. króna samkvæmt
samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir rekstrartekjum um 1.092,1 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um
1.091,2 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 873,9
millj. króna. 

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A-
og B-hluta var rekstrarafgangur að fjárhæð um 130,8 millj. króna en samkvæmt
fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir tapi upp á 1,1 millj. króna. Afkoman varð því
töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 131,9 millj. króna. 
Rekstrarniðurstaða A-hluta var rekstrarafgangur að fjárhæð 124,5 millj. króna
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrarafgangi upp á um 31,7 millj. króna.
Afkoman varð því betri sem nemur 92,8 millj. króna.  Ástæða þessa er að mestu
leyti aukin framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, en á árinu 2007 voru þau 96
milljónum króna hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. 

Veltufé frá rekstri var 296,8 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,66.

Heildareignir bæjarsjóðs námu um 1.671,1 millj. króna og heildareignir
sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 2.337,5 millj. króna í árslok
2007. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.283,7 millj. króna og í samanteknum
ársreikningi um 1.671,4 millj. króna. 

Fjárfestingar ársins numu samtals 228,9 millj. króna árið 2006.  Stærstu
fjárfestingar ársins voru tengdar hafnarframkvæmdum.  Heildarskuldaaukning var
upp á 66,6 millj. króna. 

Álagningarhlutfall útsvars var 13,03%. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam
0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%. 

Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Snæfellsási 2,
Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is.