2010-12-20 18:52:02 CET

2010-12-20 18:53:03 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ríkisútvarpið - Ársreikningur

Ársreikningur 2010



Fréttatilkynning



Hagnaður af rekstri RÚV rekstrarárið 1. september 2009 til 31. ágúst 2010 var
206 milljónir króna. Afkoma félagsins batnaði um 477 milljónir króna frá árinu
á undan. Þessi hagnaður kemur til styrkingar á eigin fé RÚV sem er nú 721
milljón króna og eiginfjárhlutfallið er 13,1%. 

Þegar rekstrarformi RÚV var breytt vorið 2007 lýstu forráðamenn félagsins því
markmiði að ná jafnvægi í rekstri RÚV innan tveggja ára - eftir nær stöðugan
taprekstur í áratugi. Það markmið náðist. Frá því í febrúar 2009 hefur rekstur
RÚV verið réttu megin við strikið - þrátt fyrir ytri áföll og síendurtekinn
niðurskurð stjórnvalda á tekjum RÚV af almannaþjónustu. 

Ársreikningurinn fylgir hjálagður.