2011-02-18 12:45:16 CET

2011-02-18 12:46:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824



Útboð á óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 12 0824 fór fram hjá Lánamálum
ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð
buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði
söluverðið. 


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 12 0824:
Alls bárust 19 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 9.180 m.kr. að nafnverði. 17
tilboðum var tekið fyrir 8.730 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,45 (3,23%
ávöxtunarkröfu). 


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 22.
febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 23. febrúar 2011.