|
|||
2011-07-05 17:36:41 CEST 2011-07-05 17:37:42 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 SKIPTIÚTBOÐFöstudaginn 8. júlí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi. Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokkunum RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12. júlí 2011. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 13. júlí 2011. SKIPTIÚTBOÐ Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 með sölu á RIKB 11 0722, sem fellur á gjalddaga 22. júlí nk. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 11 0722 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 100,12 (107,922740 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 13. júlí 2011. Til skýringar, jafngildir verðið 2,90% í flötum vöxtum. Andvirði bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum. Þeir sem vilja nota RIKB 11 0722 sem greiðslu í útboðinu þurfa að tilkynna lánamálum ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 12. júlí 2011. |
|||
|