|
|||
2014-04-08 18:35:11 CEST 2014-04-08 18:35:58 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á einum víxli til 6 mánaða. Flokkurinn getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði, á 5,95% flötum vöxtum (verð: 97,0642). Tilboðum var tekið að fjárhæð 840.000.000. kr. að nafnvirði. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 7,88 ma. kr. Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 15. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187 / 844 3187. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1775711] |
|||
|