|
|||
2014-12-11 17:45:58 CET 2014-12-11 17:46:58 CET REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. stækkar flokk sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn hf. lauk í dag sölu á LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki sértryggðra skuldabréfa sem skráður er á Nasdaq Iceland. Útgáfan var stækkuð um 900 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,95%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 1.400 m.kr. í sama flokki og nemur heildarstærð flokksins því 2.300 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 19. desember 2014 en Straumur fjárfestingabanki hf. mun sinna viðskiptavakt. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. |
|||
|