|
|||
2014-08-29 13:24:22 CEST 2014-08-29 13:25:24 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrsreikningurRekstur Orkuveitu Reykjavíkur á „Plani“Hagnaður Orkuveitusamstæðunnar á fyrri helmingi ársins 2014 nam 3,8 milljörðum króna og rekstrar-hagnaður (EBIT) var 7,5 milljarðar króna. Eigið fé Orkuveitu Reykjavíkur nemur nú 83,5 milljörðum og hefur meira en tvöfaldast frá árslokum 2009. Árshlutareikningur samstæðu Orkuveitu fyrir fyrstu sex mánuði ársins var staðfestur af stjórn og forstjóra í dag. Hann er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS. Allir ársreikningar Orkuveitu Reykjavíkur frá árinu 2001 eru aðgengilegir á gagnvirku formi á vef DataMarket. Smelltu hér. Planið á plani og gott betur Planið, sem staðfest var með samningi milli Orkuveitunnar og eigenda fyrirtækisins, var gert til tæplega sex ára og gildir út árið 2016. Markmið þess var að skila samstæðunni liðlega 50 milljarða króna betri sjóðstöðu, fyrst og fremst með sparnaði í rekstri, en einnig með eignasölu, láni frá eigendum og auknum tekjum. Um mitt ár 2014, þegar tímabil Plansins var liðlega hálfnað, áttu aðgerðirnar að hafa skilað 39,8 milljörðum króna. Niðurstaðan er hinsvegar 46,4 milljarðar sem er 17% umfram markmið. Áfram verður unnið eftir Planinu til ársloka 2016. Aðhald í rekstri skilar árangri Bætta afkomu Orkuveitunnar undanfarin ár má ekki síst rekja til þess að tekist hefur að lækka útgjöld verulega að raungildi meðan tekjur hafa vaxið. Frá 2010 hafa tekjur á fyrri hluta árs vaxið um u.þ.b. 40%. Tveir áfangar við Hellisheiðarvirkjun hafa verið teknir í notkun á þessu tímabili. Tekjur samstæðu Orkuveitunnar minnka frá fyrri hluta árs 2013 og er helsta ástæða þess lágt álverð, sem dregur úr tekjum af raforkusölu. Álverð hefur hækkað nokkuð frá uppgjörsdegi og því ekki útilokað að tekjur af raforkusölu rétti úr kútnum áður en árið er úti. Verulegur árangur hefur náðst í að verja rekstur Orkuveitunnar fyrir sveiflum í álverði, vöxtum og gengi með samningum við erlendar fjármálastofnanir. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur: Okkur hefur gengið prýðilega að ná tökum á rekstri Orkuveitunnar og nú sjáum við árangur þess í traustari efnahag fyrirtækisins. Eiginfjárhlutfallið, sem nú er um 30%, hefur vaxið ört eftir því sem batnandi afkoma hefur gert okkur fært að borga niður skuldir. Þar er þó talsvert verk óunnið og við verðum að halda vöku okkar. Tímabil Plansins er nú liðlega hálfnað og árangurinn er umfram markmið. Starfsfólk og stjórnendur Orkuveitunnar munu hér eftir sem hingað til leggja allt kapp á missa ekki sjónar á markmiðum Plansins um leið og áhersla er lögð á að viðskiptavinir njóti traustrar þjónustu veitnanna. Yfirlit stjórnenda Allar fjárhæðir eru í milljónum króna á verðlagi hvers árs. Rekstur á fyrri helmingi árs 2010 2011 2012 2013 2014 ------------------------------------------------------------------------- Rekstrartekjur 13.561 16.676 19.287 20.111 18.826 ------------------------------------------------------------------------- Rekstrarkostnaður (6.505) (6.164) (6.560) (6.679) (6.971) ------------------------------------------------------------------------- EBITDA 7.056 10.512 12.727 13.432 11.855 ------------------------------------------------------------------------- Afskriftir (3.902) (4.136) (4.585) (4.496) (4.331) ------------------------------------------------------------------------- Rekstrarhagnaður EBIT 3.154 6.376 8.142 8.936 7.524 ------------------------------------------------------------------------- ------------------------------------------------------------------------- Afkoma tímabilsins 5.118 (3.821) (924) 3.736 3.831 ------------------------------------------------------------------------- ------------------------------------------------------------------------- Sjóðstreymi ------------------------------------------------------------------------- Innleystar vaxtatekjur 100 58 40 81 359 ------------------------------------------------------------------------- Greidd vaxtagjöld (2.032) (2.452) (2.805) (2.473) (2.560) ------------------------------------------------------------------------- Handbært fé frá rekstri 6.868 8.928 9.988 10.059 10.953 ------------------------------------------------------------------------- Veltufé frá rekstri 6.256 8.886 10.067 11.174 9.533 ------------------------------------------------------------------------- Nánari upplýsingar: Ingvar Stefánsson framkvæmdastjóri fjármála 516 6000 |
|||
|