2010-07-27 06:00:00 CEST

2010-07-27 06:01:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.

Uppgjör Össurar - annar ársfjórðungur 2010


                                     Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 19/2010

                                                        Reykjavík, 27. júlí 2010





MIKIL SÖLUAUKNING





Sala  - Sala jókst talsvert á öðrum ársfjórðungi eða um 12%, mælt í staðbundinni
mynt.  Salan nam alls 90 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 81 milljón dala
á  öðrum ársfjórðungi í fyrra. Sala jókst í báðum stærstu vöruflokkum félagsins,
stoðtæki um 15% og spelkur og stuðningsvörur um 11%.



Arðsemi - Össur sýnir áfram góðan hagnað. EBITDA nam 20 milljónum Bandaríkjadala
eða 22% af sölu og framlegðin nam 56 milljónum dala eða 62% af sölu. Framlegð er
stöðug  og aukin arðsemi er til komin vegna aukinnar sölu. Hagnaður á tímabilinu
nam  14 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 2 milljónir dala á sama tímabili
í fyrra. Gengishagnaður á fjármagnsliði hefur mikil jákvæð áhrif á hagnað.



Jón Sigurðsson, forstjóri:"Árangurinn  á öðrum ársfjórðungi  var mjög góður  á öllum mörkuðum  og vöxtur í
helstu  vöruflokkum.  Nýjum  spelkum  og  stuðningsvörum  var  vel tekið á fyrri
helmingi  ársins og  það á  sinn þátt  í aukinni  sölu. Sala  á stoðtækjum hefur
gengið vel og aukist í öllum vörulínum. Sala á hátæknivörunum gengur áfram vel."



Helstu áfangar á öðrum fjórðungi:



  * Góð frammistaða í spelkum og stuðningsvörum - Sala á spelkum og
    stuðningsvörum var mjög góð í Bandaríkjunum á öðrum ársfjórðungi. Annan
    ársfjórðunginn í röð gengur mjög vel í Bandaríkjunum og er söluaukning yfir
    markaðsvexti. Söluaukning á spelkum og stuðningsvörum hjá EMEA var í takt
    við markaðsvöxt.

  * Vöxtur í öllum stoðtækjavörulínum - Sala á stoðtækjum gengur áfram mjög vel,
    bæði í Bandaríkjunum og hjá EMEA, og hefur aukist umfram markaðsvöxt. Sala á
    hátæknivörunum nam 15% af sölu stoðtækja á fjórðungnum. Gert er ráð fyrir að
    vöxturinn verði ekki eins mikill á seinni hluta ársins.



Áætlun  - Stjórnendur  gera ráð  fyrir að  söluaukning verði  í efri  mörkum eða
jafnvel  aðeins yfir fyrri áætlun, sem gerði ráð fyrir 4-6% innri vexti á árinu,
mælt  í staðbundinni mynt. Gert er ráð fyrir innri EBITDA vexti yfir 10%, mælt í
staðbundinni mynt.



Símafundur kl. 10:00 þriðjudaginn 27. júlí



Í  dag,  þriðjudaginn  27. júlí,  verður  haldinn  símafundur  fyrir  fjárfesta,
hluthafa  og  aðra  markaðsaðila  þar  sem  farið  verður  yfir  niðurstöður 2.
ársfjórðungs  2010. Fundurinn  hefst  kl.  10:00 GMT  /  12:00 CET / 6:00 EST. Á
fundinum   munu   þeir   Jón   Sigurðsson,  forstjóri,  og  Hjörleifur  Pálsson,
fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á
ensku   og   verður   hægt   að   fylgast   með   honum   á  netinu  á  slóðinni
www.ossur.com/investors



Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:

Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða

+46(0)8 505 598 53

Bandaríkin: +1 866 458 40 87

Ísland: 800 8660





Nánari upplýsingar:

Jón Sigurðsson, forstjóri                sími: 515-1300

Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri       sími: 515-1300

Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044






Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors







[HUG#1434128]