|
|||
2009-11-16 15:40:02 CET 2009-11-16 15:41:02 CET REGULATED INFORMATION Hitaveita Suðurnesja - Ársreikningur- Árshlutareikningur 30. september 2009HS Orka hf. kynnir hækkun í afkomu og eiginfjárhlutfalli HS Orka hf. - Árshlutareikningur 30. september 2009 Árshlutareikningur HS Orku hf. var samþykktur á fundi stjórnar í dag, 16. nóvember 2009. Vegna sérstakra aðstæðna og að beiðni hlutahafa birtir félagið nú 9 mánaða uppgjör en hefur hingað til eingöngu birt ársuppgjör og hálfsársuppgjör. Helstu atriði Heildarafkoman var á tímabilinu jákvæð um 2.641 m.kr. Eiginfjárhlutfall var 23,0% en var 16,3% í upphafi ársins. Frá upphafi reikningsskilatímabilsins hefur álverð hækkað þannig að framtíðarvirði álverssamninga (gangvirðisbreytingar innbyggðra afleiða) hefur hækkað um rúmlega 2,2 milljarða. Á móti kemur gengistap á sama tíma um 1,2 milljarða kr. Birtar samanburðarfjárhæðir eru 12 mánaða tímabil 2008 en ekki 9 mánaða og eru því ekki samanburðarhæfar. Þetta orsakast af erfiðleikum við að útbúa samanburðarfjárhæðir fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2008 þar sem félaginu var skipt í tvö félög í desember 2008. Þar sem HS Veitur hf. tóku yfir sérleyfisstarfssemi Hitaveitu Suðurnesja hf. Starfsemi sem nú tilheyrir HS Veitum hf. er birt sem aflögð starfsemi í birtum samanburðartölum í árshlutareikningi félagsins. Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 2.226 millj. kr., samanborið við tap að fjárhæð 11.682 millj. kr. allt árið 2008. Þegar tekið er tillit til tekna og gjalda sem færð eru á eigið fé er heildarhagnaður tímabilsins 2.614 millj. kr. samanborið við tap að fjárhæð 4.744 millj. kr. á árinu 2008. Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu námu rekstrartekjur HS Orku hf. á tímabilinu 4.357 millj. kr., en voru 5.425 millj. kr. á allt árið áður. Vænt hækkun rekstrartekna allt árið 2009 nemur 7% frá árinu 2008. Hækkun tekna er að hluta til vegna þjónustutekna vegna veittrar þjónustu til HS Veitna hf., en félögin hafa gert þjónustusamning sín á milli þar að lútandi. Framleiðslukostnaður og kostnaðarverð sölu nam 3.024 millj. kr., samanborið við 3.066 millj. kr. allt árið áður. Hækkun framleiðslukostnaðar og kostnaðarverðs sölu stafar mest megnis vegna fyrstu hreinsunar borhola á Reykjanesi auk kostnaðar vegna veittrar þjónustu við HS Veitur hf. Í júlí 2009 seldi félagið land og hitaréttindi til Reykjanesbæjar. Söluverðmætið nam 854 millj. kr. og söluhagnaður nam 784 millj. kr. Annar rekstrarkostnaður nam 382 millj. kr. samanborið við 376 millj. kr. allt árið áður. Meðal annars rekstrarkostnaðar er virðisrýrnun óefnislegra eigna að fjárhæð 142 millj. kr. Annar rekstrarkostnaður án virðisrýrnunar nam 240 millj. kr. Vegna núverandi markaðsaðstæðna búast stjórnendur félagsins við að framtíðarverkefnum félagsins verði frestað og eftir mat endurheimtanlegrar fjárhæðar þróunarkostnaðar virðisrýrði félagið að fullu þróunarkostnað vegna Hallkellshóla. Hrein fjármagnsgjöld voru 615 millj. kr. á tímabilinu samanborið við hrein fjármagnsgjöld að fjárhæð 15.516 millj. kr. allt árið áður. Veiking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum leiddi til 1.225 millj. kr. gengistaps, en allt árið áður nam gengistap 10.408 millj. kr. Vaxtagjöld námu 791 millj. kr. fyrstu 9 mánuði ársins 2009 miðað við 1.037 millj. kr. allt árið áður. Enginn fjármagnskostnaður var eignfærður á árinu samanborið við 34 millj. allt árið áður. Tekjur af gangvirðisbreytingum innbyggðra afleiða félagsins námu 2.157 millj. kr. á tímabilinu samanborið við gjöld að fjárhæð 2.687 millj. kr. allt árið áður. Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga nam 229 millj. kr. samanborið við tap að fjárhæð 264 millj. kr. allt árið áður. Þýðingarmunur hlutdeildarfélaga var jákvæður um 415 millj. kr. og er færður meðal annarrar heildarafkomu. Þýðingarmunurinn er tilkominn vegna breytingar á uppgjörsmynt hlutdeildarfélags. Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir HS Orku hf. þann 30. september 2009 bókfærðar á 37.750 millj. kr. Eignir hækkuðu um 871 millj. kr. frá ársbyrjun. Skuldir HS Orku hf. nema 28.774 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, þar af eru skammtímaskuldir 5.581 millj. kr. Skuldir hafa lækkað um 1.770 millj. kr. frá áramótum. Af því nemur lækkun langtímaskulda 7 millj. kr. Skammtímaskuldir lækka um 1.762 millj. kr., sem skýrist að mestu leyti af greiðslu vaxtaberandi skammtímalána og greiðslu skammtímaskulda vegna framkvæmdakostnaðar. Félagið uppfyllir ekki fjárhagsskilyrði í lánasamningum um lágmarks eiginfjárhlutfall og rekstrarhlutföll. Félagið hefur nú náð samkomulagi við NIB (Norræna fjárfestingabankann) og CEB (Þróunarbanka Evrópu) og samkomulag við EIB (Fjárfestingarbanki Evrópu) er á lokastigi. Í samræmi við samkomulagi munu bankarnir afsala sér rétti til gjaldfellingar vegna brota á upphaflegum fjárhagsskilyrðum í ákveðin tíma og skipta þeim út fyrir ný fjárhagsskilyrði til skamms tíma. Lánasamningar með brotin fjárhagsskilyrði eru sett fram til samræmis við upphafleg samningsákvæði. Eigið fé HS hf. nam 8.576 millj. kr. í lok tímabilsins. Eiginfjárhlutfall var 23,0% en var 16,3% í ársbyrjun. Í ársbyrjun var eigið fé 5.934 millj. kr. Hækkun eigin fjár skýrist af hagnaði tímabilsins og þýðingarmun vegna hlutdeildarfélags. Horfur um rekstur HS Orku hf. eru góðar að því gefnu að samningar við alla lánadrottna félagsins um ný fjárhagsskilyrði og fleira um núverandi lán fyrirtækisins. Umsvif fara vaxandi og áfram verður unnið að aukinni orkuvinnslu. Unnið verður að rannsóknum á frekari virkjunarkostum og er verið að afla margvíslegra leyfa í því skyni. Stærstu einstöku verkefnin eru rannsóknarboranir og annar undirbúningur fyrir nýjar virkjanir og aukin niðurdæling. "Helstu fjárhæðir úr árshlutareikningnum eru sem hér segir í þús. kr. Sjá viðhengi. |
|||
|