2012-01-12 12:46:03 CET

2012-01-12 12:47:04 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0416 OG RIKV 12 0716


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0416 og RIKV 12 0716 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 12 0416:

Alls bárust 19 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 18.250 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 10.950 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,295 (flatir
vextir 2,81%). 

RIKV 12 0716:

Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.475 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 8.250 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,629 (flatir
vextir 2,75%).