|
|||
2008-07-24 17:24:23 CEST 2008-07-24 17:25:24 CEST REGULATED INFORMATION 365 hf. - FyrirtækjafréttirLokaniðurstöður kauptilboðs 365 hf. til hluthafaLokaniðurstöður kauptilboðs 365 hf. til hluthafa félagsins, eftir að það var opnað að nýju þann 21. júlí síðastliðinn, er á þá leið að alls hafa eigendur 7,2% hlutafjár í 365 hf., eða 185 aðilar samþykkt kauptilboðið. Eigendur tæplega 93% hlutafjár (þar af rúm 2% í eigin bréfum félagsins), eða um 625 aðilar, munu eiga hluti sína áfram í félaginu eftir fyrirhugaða afskráningu þess. Kauptilboðið var til hluthafa félagsins um kaup á bréfum hluthafa á genginu 1,20 kr. Straumur fjárfestingafélag mun annast greiðslu til þeirra hluthafa sem tóku tilboði félagsins. Hluthafar munu fá andvirði bréfanna greitt á reikninga sína fyrir 1. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir: Hildur Sverrisdóttir regluvörður 365 hf. s. 849-2491 hildurs@365.is |
|||
|