2017-09-25 11:00:01 CEST

2017-09-25 11:00:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 

Í viku 38 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.273.794 eigin hluti að kaupverð 52.027.140 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
20.9.2017 14:13:57 900.000 16,05 14.445.000
21.9.2017 09:30:28 1.000.000 16 16.000.000
21.9.2017 09:33:33 1.000.000 15,75 15.750.000
21.9.2017 10:08:43 354.728 15,6 5.533.757
22.9.2017 11:06:46 19.066 15,65 298.383
Samtals   3.273.794   52.027.140

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.

Sjóvá átti 55.843.405 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 59.117.199 eigin hluti eða sem nemur 3,97% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 51.035.667 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 3,42% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 899.200.804 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000