2009-12-30 10:00:00 CET

2009-12-30 10:01:37 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Fyrirtækjafréttir

Össur hefur gert nýjan samning um viðskiptavakt í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn


Össur  hf. ("Össur") hefur í dag gert  samning við SEB Enskilda Equities ("SEB")
um  viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn.

Samningnum  er ætlað að  auka viðskipti með  hlutabréf Össurar í kauphöll NASDAQ
OMX   í  Kaupmannahöfn  og  stuðla  að  skilvirkri  og  gegnsærri  verðmyndun  á
hlutabréfum félagsins.
Samkvæmt samningnum mun SEB setja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins
alla  viðskiptadaga í kauphöll  NASDAQ OMX í  Kaupmannahöfn.Hvert tilboð skal að
lágmarki  vera 5.000 hlutir. Munur milli kaup-  og sölutilboðs má ekki fara yfir
2,0%.
Samningi  Össurar  við  Nordea  um  viðskiptavakt  hefur verið sagt upp og tekur
uppsögnin  gildi 31. desember  2009. Samningurinn við  SEB tekur gildi 1. janúar
2010.
Arion   banki   og   Saga  Capital  Fjárfestingarbanki  annast  viðskiptavakt  á
hlutabréfum Össurar í kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi.
Nánari upplýsingar veita:
Hjörleifur Pálsson,fjármálastjóri, sími 515 1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044



[HUG#1368705]