2017-11-13 16:41:28 CET

2017-11-13 16:42:29 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Eimskipafélag Íslands hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2017

Kynningarfundur 22. nóvember 2017

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2017 eftir lokun markaða þriðjudaginn 21. nóvember 2017.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánaða ársins 2017.

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 22. nóvember 2017 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:15.

Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.