|
|||
![]() |
|||
2017-11-13 18:02:46 CET 2017-11-13 18:03:16 CET REGULATED INFORMATION Skeljungur hf. - Viðskipti félags með eigin bréfSkeljungur hf.: - Breytingar á eigin hlutum félagsSkeljungur: Reglubundin tilkynning á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í 45. viku 2017, keypti félagið 14.988.600 eigin hluti fyrir 112.414.500 kr. eins og hér segir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð 8.11.2017 10:39:46 4.996.200 7,37 36.821.994 9.11.2017 15:16:59 4.996.200 7,59 37.921.158 10.11.2017 13:29:08 4.996.200 7,54 37.671.348 Samtals 14.988.600 112.414.500 ----------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 7. nóvember 2017. Skeljungur hefur nú keypt samtals 14.988.600 hluti í félaginu sem samsvarar 6,96% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 112.414.500 krónum sem samsvarar 16% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Skeljungur á nú samtals 14.988.600 hluti, eða 0,69% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 215.203.185 hlutir, þ.e. 10% eigin fjár, en fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 700 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, fjarfestar@skeljungur.is, s: 840-3071. [] |
|||
|