2014-06-26 17:46:38 CEST

2014-06-26 17:47:39 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Lánshæfismat Kópavogsbæjar hækkar


Lánshæfismat Kópavogsbæjar hækkar um tvo flokka í mati Reitunar á lánshæfi
bæjarins. Matið hækkar í i.A2 og úr i.BBB1. Þessi hækkun er tilkomin vegna
minni áhættu sveitafélagsins, sterkari efnahags þess og jákvæðra horfa í
efnahagsmálum. 

„Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi fyrir íbúa Kópavogs og staðfesta það að
fjárhagsáætlanir hér hafa verið ábyrgar og þeim hefur verið fylgt vel eftir.
Sífellt betra lánshæfismat hefur skilað sér í betri vaxtakjörum, útgjöld
bæjarins hafa því lækkað og bæjarbúar njóta góðs af því,“ segir Ármann Kr.
Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar. 

Gangi áætlanir og væntingar sveitafélagsins eftir ætti lánshæfi Kópavogsbæjar
að geta styrkst enn frekar segir í matinu. 

Í greiningu segir meðal annars að gengisáhætta sé nú hverfandi eftir
uppgreiðslu nánast allra gengisbundinna lána, að áætlanir sveitarfélagsins hafi
gengið eftir og allt bendi til þess að það takist að ná settu markmiðum um
skuldahlutfall á næstu árum. Þá muni jákvæðar horfur í efnahagsmálum koma sér
vel fyrir sveitafélagið. 

Meðfylgjandi er lánshæfismat Reitunar.