2015-02-27 10:13:38 CET

2015-02-27 10:14:39 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Spölur ehf. - Ársreikningur

Spölur - Ársuppgjör 1. janúar 2014 til 31. desember 2014


  -- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. janúar 2014 til 31.
     desember 2014 nam 445 mkr., hagnaður á rekstrarárinu 1. janúar 2013 til 31.
     desember 2013 nam 355 mkr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á fjórða
     ársfjórðungi félagsins sem er 1. október 2014 til 31. desember 2014 nam 56
     mkr. en á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 38 mkr. Spölur er
     að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.



  -- Greiðsluflæðið gefur betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna
     vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e.
     2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 643 mkr.
     (2013:657 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu og
     nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2014 eins og
     lánasamningar gera ráð fyrir.
  -- Veggjald ársins nam 1.136 mkr. til samanburðar við 1.091 mkr. árið áður sem
     er 4,1 % hækkun.
  -- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrir tímabilið 1. janúar 2014
     til 31.desember 2014 nam 335 mkr. og hækkar um rúmar 6 mkr frá árinu áður
     þegar hann nam 329 mkr. Helsta breytingin er vegna aukins
     viðhaldskostnaðar, hækkun í rafmagni og launum en á móti kemur lækkun á
     tryggingum.
  -- Afskriftir á árinu námu samtals 121 mkr. og voru á sama tímabili árið áður
     120 mkr.
  -- Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld lækka á milli ára um 74 mkr.
  -- Skuldir Spalar ehf lækka úr 3.473 mkr. þann 31. desember 2013 í 3.101 mkr.
     þann 31. desember 2014.


Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur
meiri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir. 

Tímabilið frá 1. janúar 2014 til 31. desember 2014 er sextánda fjárhagsár
félagsins. Á þessu tímabili fóru 1.939 þúsund ökutæki um göngin sem greiddu
veggjald sem er um 2,7% aukning frá sama tímabili árið áður. Þessi fjöldi
samsvarar því að um 5.312 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern. 

Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin hafa hækkað.



Lykiltölur úr rekstri Spalar ehf. í þúsundum króna: Sjá viðhengi.





Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma
433 5910. 

________________________________________________________________________________
_________________