2013-08-12 13:01:46 CEST

2013-08-12 13:02:47 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsnet hf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Landsnets hf. fyrir tímabilið janúar-júní 2013


- Hagnaður tímabilsins nam 1.488 milljónum króna -


Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 1.488 mkr. fyrstu 6
mánuði ársins 2013 samanborið við hagnað að fjárhæð 236 mkr. fyrir sama tímabil
árið 2012. 

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 4.850 mkr.
samanborið 4.178 mkr. á sama tímabili fyrra árs og hækkar um 672 mkr. á milli
ára. Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 1.762 mkr. á tímabilinu en voru 2.647
mkr. á sama tímabili ársins 2012. Hrein fjármagnsgjöld lækka því um 885 mkr. á
tímabilinu janúar-júní 2013 í samanburði við sama tímabil 2012. 

Eiginfjárhlutfall í lok júní var 19,4% samanborið við 17,7% í lok ársins 2012.
Eigið fé í lok tímabilsins nam 14.751 mkr. samanborið við 13.263 í lok árs
2012. Heildareignir félagsins í lok júní námu 76.116 mkr. samanborið við 74.873
mkr. í lok árs 2012. Heildarskuldir námu 61.365 mkr. samanborið við 61.610 mkr.
í lok árs 2012. 

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í lok júní nam handbært fé 9.215 mkr.
Handbært fé frá rekstri fyrstu 6 mánuði ársins nam 2.714 mkr. 

Árshlutareikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 12. ágúst 2013.

Frekari upplýsingar veitir:

Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang
gudlaugs@landsnet.is 





Helstu niðurstöður rekstrarreiknings, lykiltölur efnahagsreiknings og
kennitölur (fjárhæðir eru í þúsundum króna): Sjá fréttatilkynningu í viðhengi.