|
|||
![]() |
|||
2010-05-25 11:03:25 CEST 2010-05-25 11:04:25 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Pranešimas pataisytas. Spauskite norėdami peržiūrėti pataisytą pranešimą Ísafjarðarbær - ÁrsreikningurÁrsreikningur 2009Ársreikningar Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2009 var samþykktur við síðari umræðu í bæjarstjórn Ísafjarðar þann 20. maí 2009. Nýjar reglur um reikningsskil sveitarfélaga tóku gildi í ársbyrjun 2002 og er ársreikningurinn í samræmi við þær. Í reglunum felst að reikningsskil sveitarfélaga eru færð til samræmis við almenn reikningsskil fyrirtækja. Rekstrareiningar sveitarfélagsins skiptast í A-hluta (sveitarsjóður) og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sveitarsjóðs sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum eða aðalsjóður, eignasjóður og þjónustustöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki/stofnanir sem fjármagnaðar eru með þjónustutekjum en þau eru: hafnarsjóður, vatnsveita, dvalar- og hjúkrunarheimili, fráveita, Funi sorpbrennslustöð og Fasteignir Ísafjarðarbæjar ehf. Sjá viðhengi. Nánari upplýsingar veita: Jón Halldór Oddsson, fjármálastjóri jon.oddsson@isafjordur.is og Védís Jóhanna Geirsdóttir, aðalbókari vedis@isafjordur.is í síma 450 8000. |
|||
|