|
|||
![]() |
|||
2011-01-19 11:08:18 CET 2011-01-19 11:09:18 CET REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - FyrirtækjafréttirPreben Sörensen nýr framkvæmdastjóri Dansupport A/S, sem er dótturfélag NýherjaPreben Sörensen hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra danska upplýsingatæknifélagsins Dansupport A/S, sem er dótturfélag Nýherja hf. Preben hefur starfað hjá Dansupport undanfarin ár sem tæknistjóri félagsins. Áður var hann tæknistjóri hjá Sakata Seed Corporation og tók þátt í uppbyggingu á innviðum upplýsingatæknikerfa þess í Evrópu. Preben tekur við af Kim Lave Nielsen, sem hafði verið framkvæmdastjóri Dansupport síðustu þrjú ár. Kim Lave Nielsen hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri markaðsmála hjá NetDesign A/S. |
|||
|