|
|||
![]() |
|||
2017-03-15 18:31:28 CET 2017-03-15 18:31:28 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Reginn hf. - Niðurstöður hluthafafundarNiðurstöður aðalfundar Regins hf. 2017Aðalfundur Regins hf. var haldinn klukkan 16:00, miðvikudaginn 15. mars 2017 í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Björtuloftum, Austurbakka 2, 101 Reykjavík. 1. Ársreikningur: Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2016. 1. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2016: Aðalfundur samþykkti að ekki yrði greiddur arður á árinu 2017 en að öðru leyti vísast til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum félagsins á árinu. Hagnaður verður fluttur til næsta árs. 1. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu: Aðalfundur samþykkti framlagða starfskjarastefnu. 1. Heimild til kaupa á eigin hlutum: Ekki var lögð fram tillaga um kaup á eigin bréfum. 1. Breyting á samþykktum félagsins: Ekki lágu fyrir tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. 1. Kosning félagsstjórnar: Eftirfarandi einstaklingar voru sjálfkjörin í aðalstjórn til næsta aðalfundar: Albert Þór Jónsson, Benedikt K. Kristjánsson, Bryndís Hrafnkelsdóttir, Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, Tómas Kristjánsson, Eftirtalin voru sjálfkjörin í varastjórn: Finnur Reyr Stefánsson, Hjördís D. Vilhjálmsdóttir. 1. Kosning endurskoðanda: Aðalfundur samþykkti að KPMG ehf., Borgartúni 27, 105 Reykjavík, yrði endurkjörið endurskoðunarfyrirtæki félagsins. 1. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir næsta kjörtímabil: Aðalfundur félagsins samþykkti eftirfarandi þóknun til stjórnarmanna, varastjórnar og undirnefnda stjórnar: Stjórnarformaður: 600.000 kr. á mánuði. Meðstjórnendur: 300.000 kr. á mánuði. Varamenn: 150.000 kr. fyrir hvern setinn stjórnarfund, þó ekki hærra en 300.000 kr. fyrir hvern mánuð. Seta í undirnefndum stjórnar: 60.000 kr. fyrir hvern setinn fund. Ársskýrsla Regins 2016 er aðgengileg á eftirfarandi svæði: www.arsskyrsla2016.reginn.is |
|||
|