|
|||
2013-03-18 10:26:25 CET 2013-03-18 10:27:26 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstöður hluthafafundaLánasjóður sveitarfélaga ohf. - Niðurstöður aðalfundur sem haldinn var 15. mars 2013Samþykktir aðalfundar 15. mars 2013 Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. fór fram á Grand Hótel Reykjavík og hófst fundurinn kl. 16:00. Meðfylgjandi eru helstu niðurstöður fundarins. Tillögur samþykktar á aðalfundi Lánsjóðs sveitarfélaga ohf. 1. Ársreikningur og skýrsla stjórnar voru samþykkt samhljóða. 2. Samþykkt var samhljóða tillaga stjórnar lánasjóðsins að þann 2 apríl verði greiddar 408.000.000 í arð vegna rekstrarársins 2012. 3.Kosning stjórnar. Magnús B. Jónsson var kjörinn formaður stjórnar Aðalmenn: Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum Helga Benediktsdóttir, deildarstjóri fjárstýringar hjá Reykjavíkurborg Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ Svanfríður Inga Jónasdóttir, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð Varamenn: Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sveitarfélaginu Árborg Bryndís Gunnlaugsdóttir, bæjarfulltrúi hjá Grindavíkurbæ Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri CAOZ hf. Ólafur Þór Ólafsson, bæjarfulltrúi hjá Sandgerðisbæ Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri hjá Fjarðarbyggð 5. Tillaga um að starfskjarastefna félagsins verði óbreytt var samþykkt. 6. Samþykkt tillaga um stjórnarlaun vegna ársins 2013. 7. Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki skal endurskoðandi ráðinn til 5 ára í senn. Því var þessi liður ekki á dagskrá nú þar sem endurskoðandi félagsins, KPMG, var ráðinn árið 2011. Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson í síma 515 4949 eða ottar@lanasjodur.is |
|||
|