2011-06-29 20:12:13 CEST

2011-06-29 20:13:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Fyrirtækjafréttir

Vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu Sláturfélags Suðurlands svf. er lokið með samkomulagi við Arion banka hf.


Fjárhagsleg endurskipulagning

  -- Vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu sem hófst í janúar 2011 er lokið
     með samkomulagi við Arion banka hf.
  -- Langtímaskuldir lækka um 1100 milljónir króna með leiðréttingu
     gengistryggðra lána og uppgreiðslu lána.
  -- Endurskipulagningin hefur um 900 milljón króna jákvæð áhrif á afkomu
     félagsins.
  -- Áhrif endurskipulagningarinnar á rekstur og efnahag koma fram í uppgjöri
     félagsins á fyrri árshelmingi 2011.



Sláturfélag Suðurlands hefur komist að samkomulagi við viðskiptabanka sinn
Arion banka hf. um uppgjör gengistryggðra lána. Endurskipulagningin var unnin í
samstarfi við Arion banka hf. með milligöngu verðbréfafyrirtækisins Virðingar
hf. vegna endurfjármögnunar lána. 

Með samkomulaginu við Arion banka lækka langtímaskuldir félagsins um 1100
milljónir króna með leiðréttingu gengistryggðra lána og uppgreiðslu lána. 

Endurfjármögnun að fjárhæð 1600 milljónir króna með lánstíma til 25 ára aðlagar
afborganir lána að greiðslugetu félagsins til lengri tíma. 

Endurskipulagningin hefur um 900 milljón króna jákvæð áhrif á afkomu félagsins.
Áhrif endurskipulagningarinnar á rekstur og efnahag koma fram í uppgjöri
félagsins á fyrri árshelmingi 2011 sem áætlað er að birta 26. ágúst 2011. 



Frekari upplýsingar veita:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 - steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 - hjalti@ss.is