2016-09-26 18:29:05 CEST

2016-09-26 18:29:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun og lok endurkaupaáætlunar.


Í 38. og 39. viku 2016 hafa Reitir fasteignafélag hf. keypt 122.699 eigin hluti
fyrir 11.190.148 kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími        Keyptir  Viðskipta-ve    Kaupverð      Eigin hlutir eftir
g                       hlutir            rð                           viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
21.9.2016  11:01         3.937          91,2     359.054              17.447.591
--------------------------------------------------------------------------------
26.9.2016  13:54       118.762          91,2  10.831.094              17.566.353
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals                122.699                11.190.148                        
--------------------------------------------------------------------------------

Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann
15. mars 2016, og breytt var sbr. tilkynningu þann 2. september 2016, er nú
lokið og hefur áætlun félagsins um kaup á eigin bréfum verið náð. 

Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 18.000.000 hlutum og
heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 1.500 milljónum króna.
Endurkaupaáætlunin var í gildi til aðalfundardags 2017 nema öðru hvoru
framangreindra marka yrði náð áður. Félagið hefur nú keypt 17.566.353 hluti
fyrir samtals 1.500 milljónir kr. og er því framangreindu marki um
heildarkaupverð náð. Reitir eiga nú samtals sem nemur 2,56% af heildarhlutafé
félagsins. 

Endurkaupaáætlunin var framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr.
2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik, nr.
630/2005. 

Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669
4416.