|
|||
2007-11-30 17:34:06 CET 2007-11-30 17:34:06 CET REGULATED INFORMATION FL GROUP hf. - FyrirtækjafréttirNiðurstaða valfrjáls yfirtökutilboðs FL GroupTilboðstímabili yfirtökutilboðs FL Group til hluthafa Tryggingamiðstöðvarinnar er lokið en það rann út þann 28. nóvember síðastliðinn. 220 hluthafar hafa samþykkt yfirtökutilboð félagsins. Að loknu tilboðstímabili hefur FL Group tryggt sér 99,05% af heildarhlutafé Tryggingarmiðstöðvarinnar. Kaup FL Group hf. á hlutum í Tryggingarmiðstöðinni hf. eru háð samþykki Fjármálaeftirlitsins en umsókn FL Group hf. um virkan eignarhlut í tryggingarmiðstöðinni hf. er til meðferðar hjá eftirlitinu. Niðurstaða málsins er að öllu leyti á ábyrgð FL Group og mun ekki hafa áhrif á samninga á milli FL Group og hluthafa í tengslum við yfirtökutilboðið. Hluthafar sem samþykktu yfirtökutilboðið fá greitt með reiðufé eða með bréfum í FL Group samkvæmt tilboðinu og mun uppgjör fara fram miðvikudaginn 5. desember næstkomandi. Frekari upplýsingar veitir: Halldór Kristmannsson Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Sími: 591 4400 halldor@flgroup.is |
|||
|