|
|||
2007-12-03 22:19:30 CET 2007-12-03 22:19:30 CET REGULATED INFORMATION Alfesca hf. - Fyrirtækjafréttir-Alfesca gerir nýjan samning við Kaupþing um viðskiptavaktAlfesca hf. hefur gert nýjan samning við Kaupþing banka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands hf. Kaupþing skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í Kauphöll Íslands, í hlutabréf Alfesca (A) að lágmarki 2.000.000 kr. að nafnvirði á gengi sem Kaupþing ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Kaupþing er skuldbundið til að kaupa eða selja skal vera kr. 50.000.000,- að markaðsvirði. Ef óskað er frekari upplýsinga hafið samband við: Antony Hovanessian Business Development Director +33 (0) 5 58 56 74 74 ah@alfesca.com Hrefnu Ingólfsdóttur Forstöðum. samskiptasviðs +354 477 7000 hi@alfesca.com |
|||
|