|
|||
2024-05-21 15:55:49 CEST 2024-05-21 15:55:49 CEST REGULATED INFORMATION Hampiðjan hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Hampiðjan hf. - Kynningarfundur fyrir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2024 fimmtudaginn 23. maí.Hampiðjan hf. mun birta uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2024 eftir lokun markaða fimmtudaginn 23. maí. Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@hampidjan.is Árshlutareikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig aðgengileg á heimasíðunni að fundi loknum. Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri, í síma 664-3361
|
|||
|