|
|||
2011-02-21 17:24:53 CET 2011-02-21 17:25:55 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirÚtboð RVK 09 1Reykjavíkurborg hefur ákveðið að efna til útboðs þann 23. febrúar 2011 til stækkunar á skuldabréfaflokki með auðkennið RVK 09 1. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Samþykkt tilboð munu að hámarki nema 1.000 milljónir króna að nafnvirði. Reykjavíkurborg mun hafna öllum tilboðum á hærri ávöxtunarkröfu en 3,75%. Útboðið verður með „hollensku“ fyrirkomulagi þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. Reykjavíkurborg stækkaði RVK 09 1 um 4.130 mkr. að nafnvirði á árinu 2010 og er heildarstærð flokksins fyrir þetta útboð alls 9.330 mkr. Umsjón með sölu skuldabréfanna hefur MP banki. Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali: Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|