2014-12-11 17:45:58 CET

2014-12-11 17:46:58 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic English
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf. stækkar flokk sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn hf. lauk í dag sölu á LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki
sértryggðra skuldabréfa sem skráður er á Nasdaq Iceland. Útgáfan var stækkuð um
900 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,95%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 1.400
m.kr. í sama flokki og nemur heildarstærð flokksins því 2.300 m.kr. eftir
viðbótarútgáfuna. 

Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 19.
desember 2014 en Straumur fjárfestingabanki hf. mun sinna viðskiptavakt. 

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með
vísan í lög nr. 11/2008 og reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um
skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.