2012-09-07 02:07:55 CEST

2012-09-07 02:08:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur ágúst 2012


Metfjöldi farþega í millilandaflugi félagsins í ágúst

Félagið flutti 271 þúsund farþega í millilandaflugi í ágúst eða fleiri en
nokkru sinni fyrr í ágústmánuði og voru þeir 9% fleiri en á síðasta ári.
Framboðsaukning  var 12% á milli ára. Sætanýting nam 84,9% samanborið við 85,3%
í ágúst  2011.  Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 19% og
voru þeir 50% af farþegum félagsins. 

Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru  36,9 þúsund í ágúst sem er
lækkun um 3% á milli ára.  Sætanýting nam 69,3% og dróst saman um 4,9
prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 11% m.v.
ágúst á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri
en í fyrra.  Fraktflutningar jukust um 5% á milli ára. Framboð á gistinóttum
hjá hótelum félagsins jókst um 5% frá ágúst á síðasta ári. Herbergjanýting var
88,1% og var 5,8 prósentustigum hærri en í ágúst 2011. 



MILLILANDAFLUG                    ÁGÚ 12      BR. (%)     ÁTÞ 12      BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                   271,025           9%  1.400.103          14%
Sætanýting                         84,9%  -0,4 %-stig      81,8%   2,0 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000)    923.995          12%  4.857.217          13%
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG   ÁGÚ 12      BR. (%)     ÁTÞ 12      BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                    36.920          -3%    238.719           0%
Sætanýting                         69,3%  -4,9 %-stig      68,1%  -1,7 %-stig
Framboðnir sætiskm. ('000)        23.995          10%    128.605           3%
LEIGUFLUG                         ÁGÚ 12      BR. (%)     ÁTÞ 12      BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------------
Flugvélanýting                     92,0%   7,4 %-stig      91,4%  -0,9 %-stig
Seldir blokktímar                  2.778         -11%     21.431         -10%
FRAKTFLUTNINGAR                   ÁGÚ 12      BR. (%)     ÁTÞ 12      BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm. (ATK´000)      19.026           2%    121.846           7%
Seldir tonnkm. (FTK´000)           6.399           5%     58.515          19%
HÓTEL                             ÁGÚ 12      BR. (%)     ÁTÞ 12      BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------------
Framboðnar gistinætur             33.784           5%    203.954          13%
Seldar gistinætur                 29.755          12%    153.323          20%
Herbergjanýting                    88,1%   5,8 %-stig      75,2%   4,4 %-stig



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason,framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir,forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group,s:
840-7010