2011-02-24 10:39:45 CET

2011-02-24 10:40:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Glitnir sjóðir - Ársreikningur

Íslandssjóðir hf. - Ársuppgjör 2010



Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2010

  -- Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
     ársreikning Íslandssjóða hf. og B-hluta sem inniheldur ársreikning
     verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða. Þessi framsetning á
     reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga
     verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
  -- Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2010 nam 259 m.kr. samanborið
     við 269m.kr. árið 2009.
  -- Hreinar rekstrartekjur námu 1.015 m.kr. samanborið við 1017 m.kr. árið
     áður.
  -- Rekstrargjöld námu 699 m.kr. samanborið við 700 m.kr. árið áður.
     -- Heildareignir félagsins námu 2.986 m.kr. í árslok 2010 en voru 3.074
        m.kr. í ársbyrjun.
     -- Eigið fé í árslok 20010 nam 1.559 m.kr.en var 1.301 m.kr. í ársbyrjun.
     -- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um
        fjármálafyrirtæki, var 163,7% í árslok 2010 en þetta hlutfall má ekki
        vera lægra en 8,0%.
  -- Í lok desember 2010 voru 16 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign
     þeirra 115.607 milljónum króna. Einn sjóður sem er skráður í Lúxemborg er í
     stýringu
  -- Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og
     fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 10.547 m.kr. árið 2010 samanborið við
     tap uppá 2.124 m.kr. árið 2009.
  -- Mikil áhersla hefur verið lögð á viðskipta- og vöruþróun og mun því starfi
     verða haldið áfram á árinu 2011. Nýjum sjóðum félagsins hefur verið mjög
     vel tekið, en vel yfir 10 þúsund fjárfestar eiga hlutdeildarskírteini í
     sjóðum Íslandssjóða.
  -- Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af Deloitte hf. sem telur að
     reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu
     2010.
  -- Í lok desember 2010 störfuðu 13 starfsmenn hjá Íslandssjóðum.
     Framkvæmdarstjóri félagsins er Agla Elísabet Hendriksdóttir.
     Lykiltölur í m.kr:: Sjá fréttatilkynningu í viðhengi..


         Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf.
         veitir Agla Elísabet Hendriksdóttir, framkvæmdastjóri félagsins í síma
440-4917.