2014-08-22 15:56:49 CEST

2014-08-22 15:57:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Interim information (is)

Afkoma Sláturfélags Suðurlands á fyrri árshelmingi 2014


Afkoma á fyrri árshelmingi 2014



  -- Tekjur á fyrri árshelmingi 5.757 m.kr. og aukast um 8% milli ára.
  -- 255 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 230 m.kr. hagnaður árið
     áður.
  -- EBITDA afkoma var 532 m.kr. en 524 m.kr. árið áður.
  -- Eigið fé 3.805 m.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 53%.





Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands
svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf. 

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2014 var
255 m.kr.  Á sama tímabili árið áður var 230 m.kr. hagnaður.  Eigið fé
Sláturfélagsins er 3.805 m.kr. í lok júní. 

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 5.757 m.kr. á fyrri
árshelmingi ársins 2014, en 5.351 m.kr. á sama tíma árið áður og hækka því um
8%.  Aðrar tekjur voru 11 m.kr en 14 m.kr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 3.469 m.kr. en 3.080 m.kr. árið áður. Launakostnaður
hækkaði um tæp 6%, annar rekstrarkostnaður lækkaði um rúm 6% og afskriftir
hækkuðu um 9%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 375
m.kr., en 380 m.kr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir
(EBITDA) var 532 m.kr.  en var 524 m.kr. á sama tíma í fyrra. 

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 14 m.kr. en árið áður um 10
m.kr.  Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 74 m.kr., en voru 105 m.kr., á
sama tímabili í fyrra.  Reiknaður tekjuskattur nam 60 m.kr., en 55 m.kr. árið
áður.  Hagnaður af rekstri tímabilsins var 255 m.kr. en 230 m.kr. á sama
tímabili árið áður. 

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 529 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins
2014, samanborið við 519 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2013. Heildareignir
Sláturfélagsins 30. júní  voru 7.243 m.kr. og eiginfjárhlutfall 53%. 
Veltufjárhlutfall var 2,8 á fyrri hluta ársins 2014, sama og árið áður. 

Fjárfest var í varanlegum rekstarfjármunum á fyrri árshelmingi 2014 fyrir 251
m.kr. en 183 m.kr. á sama tímabili árið áður. Seldar voru eignir fyrir 5 m.kr.
Á fyrri árshelmingi var m.a. byggt 1500 fermetra vöruhús í Þorlákshöfn undir
áburð og lokið við viðbyggingu við sláturhúsið á Selfossi auk fjárfestinga í
vélbúnaði. 

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2014 var í aprílmánuði greiddur
13,7% arður af B-deild stofnsjóðs alls 25 m.kr. og reiknaðir 6% vextir á
A-deild stofnsjóðs alls 18 m.kr. 

Stjórn og forstjóri staðfestu árshlutareikning samstæðu Sláturfélagsins fyrir
tímabilið 1. janúar - 30. júní 2014 
með undirritun á stjórnarfundi í dag. Árshlutareikningur samstæðunnar er með
könnunaráritun endurskoðenda. 

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX.  Sláturfélagið
birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti.  Ráðgert er að birta afkomu
ársins 2014 þann 19. febrúar 2015. 



Staða og horfur

Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 53% eiginfjárhlutfall og
veltufjárhlutfall 2,8. Langtímatímaskuldir í lok júní 2014 voru 1.975 m.kr.
Næsta árs afborganir eru um 91 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma sem
tryggir lága árlega greiðslubyrði. 



Gert er ráð fyrir áframhaldandi neikvæðum áhrifum af vaxandi innflutningi á
kjöti á rekstur afurðahluta félagsins. Einnig ríkir nokkur óvissa með
afsetningu á hluta kindakjötsafurða sem falla til í haust. 

Staða lykilvörumerkja félagsins í kjötiðnaði er sterk og ímynd félagsins góð á
markaði sem rennir stoðum undir frekari uppbyggingu á markaðsstöðu á komandi
árum.  Samt sem áður er reiknað með að erfiðar markaðsaðstæður á kjötmarkaði
hafi neikvæð áhrif  á afkomu kjötiðnaðar á síðari árshelmingi. 

Matvöruhluti innflutningsdeildar stendur vel. Með nýjum viðskiptasamböndum
hefur vöruúrval verið aukið til áframhaldandi vaxtar. Búvöruhluti
innflutningsdeildar hefur styrkt stöðu sína á markaði fyrir helstu
rekstrarvörur bænda. Sala á Yara áburði til bænda gekk vel á fyrri hluta ársins
og sala á dlg kjarnfóðri og öðrum rekstrarvörum eykst stöðugt. 



Fjárhagsdagatal 2014

Júlí - desember 2014 uppgjör  19. febrúar 2015
Aðalfundur 2015   20. mars 2015







Frekari upplýsingar veita:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 - steinthor@ss.is
Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 - hjalti@ss.is