2010-08-27 16:09:35 CEST

2010-08-27 16:10:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Jeratún ehf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2010


Árshlutareikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta
staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á síðasta reikningsári. 

Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2010
var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 27. ágúst 2010. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess.
Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á
vettvangi sveitarfélaga. 

Tap félagsins á fyrrihluta ársins 2010 var 9.875 þús. kr. og í lok þess var
eigið fé neikvætt um sem nam 46.332 þús. kr. samkvæmt árshlutareikningi. Ástæða
fyrir þessu tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu.
Á hluthafafundi í félaginu var hlutafé aukið um 25 milljónir kr. 

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með
fyrirvara. 

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok tímabilsins námu eftirstöðvar lána 506,6
millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega
ábyrgð á greiðslu lánanna.

Kristinn Jónasson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari
upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.