|
|||
2010-10-29 14:06:46 CEST 2010-10-29 14:07:47 CEST REGULATED INFORMATION Reykjaneshöfn - FyrirtækjafréttirUpplýsingafundur 3. nóvember 2010 kl. 10.00 á Hilton Reykjavík NordicaReykjaneshöfn boðar til upplýsingafundar þann 3. nóvember 2010 kl. 10.00 á Hilton Reykjavík Nordica, samanber meðfylgjandi fundarboð. Aðgangur er heimill lánveitendum Reykjaneshafnar og eigendum verðbréfa sem útgefin eru af Reykjaneshöfn. Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson í síma 420 3222. Til allra lánveitenda Reykjaneshafnar og eigenda verðbréfa sem útgefin eru af Reykjaneshöfn Efni: Fundarboð Boðað er til fundar með lánveitendum Reykjaneshafnar þann 3. nóvember 2010, klukkan 10:00 á Hilton Reykjavík Nordica, ráðstefnusal D. Tilgangur fundarins er að upplýsa lánveitendur um aðdraganda og orsakir þeirra greiðsluerfiðleika sem Reykjaneshöfn er í, fara yfir þá stöðu sem myndast hefur og væntingar til framtíðar miðað við óbreytta stefnu. Jafnframt mun Reykjaneshöfn leggja fyrir lánveitendur tillögu sem snýr að því að skapa svigrúm fyrir stofnunina til að marka nýja stefnu sem tryggir fullar heimtur fyrir lánadrottna. Megin atriði tillögunar eru sem hér segir: • Engar greiðslur vaxta eða afborgana fyrr en 1. maí, 2011 • Yfirstandandi fjárfestingaverkefni verða stöðvuð og engin ný verkefni sett í gang • Skilmálabreytingar allra skuldabréfa, lánasamninga og útistandandi víxla þar sem gjaldföllnum greiðslum vaxta og afborgana ásamt dráttarvöxtum til 18. nóvember er bætt við höfuðstól • Nauðsynlegt er að allir kröfuhafar samþykki tillöguna formlega • Reykjaneshöfn skuldbindur sig til að halda kröfuhöfum upplýstum um framvindu sinna mála Dagskrá fundarins er sem hér segir: 10:00 Fundarsetning 10:15 Kynning á fjármálum; staðan og væntingar 10:45 Tillaga til lánveitenda; kynning 11:00 Umræður 11:30 Ferlið framundan 11:45 Fundarslit Reykjaneshöfn hefur ráðið Capacent Fjárfestingaráðgjöf (CF) sem ráðgjafa sinn í þessu ferli. CF er fjármálafyrirtæki sem starfar samkvæmt starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu. |
|||
|