|
|||
2013-08-14 18:02:12 CEST 2013-08-14 18:03:13 CEST REGULATED INFORMATION Landsbréf hf. - FyrirtækjafréttirLandsbréf – Útboðslýsing og reglur Landsbréf-LEQMeðfylgjandi eru útboðslýsing og reglur Landsbréf-LEQ. Landsbréf - LEQ, kt. 681212-9300, er verðbréfasjóður sem starfræktur er í samræmi við ákvæði II. kafla í lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði nr. 128/2011. Sjóðurinn er ennfremur vísitölusjóður sbr. 36 gr. sömu laga. Hlutverk sjóðsins er að veita viðtöku fé til sameiginlegrar fjárfestingar í hlutabréfum sem endurspegla samsetningu OMX Iceland 6 PI Cap ISK vísitölunnar (OMXI6CAPISK) sem NASDAQ OMX á Íslandi reiknar á grundvelli áhættudreifingar samkvæmt fyrirfram kunngerðri fjárfestingastefnu. Rekstrarfélag sjóðsins í skilningi I. kafla laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði eru Landsbréf hf., kt.: 690812-0520. Félagið er dótturfélag Landsbankans hf. Landsbankinn hf. annast umsjá og varðveislu fjármálagerninga sjóðsins í samræmi við II. kafla C laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Endurskoðandi Landsbréfa - LEQ og Landsbréfa hf., rekstrarfélags sjóðsins, er KPMG ehf., 590975-0449, Borgartúni 27, 105 Reykjavík. |
|||
|