2011-08-19 13:45:50 CEST

2011-08-19 13:46:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 13 0517:
Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.005 m.kr. að nafnverði. Öllum
tilboðum var hafnað. 

RIKB 16 1013:
Alls bárust 12 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.550 m.kr. að nafnverði. 8
tilboðum var tekið fyrir 2.100 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,700 (5,16%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 23.
ágúst. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 24. ágúst 2011.