2011-08-22 11:42:35 CEST

2011-08-22 11:43:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvaki - Fyrirtækjafréttir

Afskráning Markaðsbréfa Landsbankans - meðallangra


Stjórn Landsvaka hf., rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingasjóða
Landsbankans, hefur tekið ákvörðun um sameiningu verðbréfasjóðsins Markaðsbréf
Landsbankans - meðallöng við verðbréfasjóðinn Sparibréf - meðallöng. 
Síðarnefndi sjóðurinn hefur eingöngu heimild til að fjárfesta í íslenskum
ríkisskuldabréfum og kröfum á íslenska ríkið og hefur sama leyfilega
meðallíftíma og Markaðsbréf Landsbankans - meðallöng.  Þegar ákvörðun um
sameiningu sjóðanna var tekin voru einungis ríkisskuldabréf/kröfur með
ríkisábyrgð í verðbréfasjóðnum Markaðsbréf Landsbankans - meðallöng. 
Sameiningin var gerð með hagsmuni hlutdeildarskírteinishafa að leiðarljósi. 
Tilgangur rekstrarfélagsins með þessu var að ná fram auknu gagnsæi og auðvelda
fjárfestum að gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem felst í fjárfestingum í
sjóðum sem eru í stýringu hjá Landsvaka. 

Hlutdeildarskírteinishafar sjóðsins fengu bréf þann 26. apríl síðastliðinn þar
sem þeim var tilkynnt um sameininguna.  Sameiningin fór fram þann 20. maí
síðastliðinn með flutningi allra verðbréfa í eigu Markaðsbréfa Landsbankans
-meðallangra í Sparibréf Landsbankans - meðallöng. Eign
hlutdeildarskírteinishafa fluttist sjálfkrafa yfir í Sparibréf Landsbankans -
meðallöng og enginn kostnaður féll á  hlutdeildarskírteinishafa við þessa
aðgerð. 

Beiðni um afskráningu sjóðsins Markaðsbréf Landsbankans - meðallöng hefur verið
send Kauphöll. 

Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Landsvaka hf. Ari Skúlason í síma
410-7406