|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2022-12-05 09:39:12 CET 2022-12-05 09:39:12 CET REGULATED INFORMATION Sýn hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsSýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 4 keypti Sýn hf. 190.000 eigin hluti að kaupverði 11.330.000 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. nóvember 2022. Sýn hf. átti 644.635 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 834.635 eigin hluti eða sem nemur 0,31% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 49.145.090 kr. Endurkaupin munu að hámarki nema 4.958.678 hlutum, eða um 1,85% af útgefnum hlutum félagsins, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna fari ekki yfir 300 milljónir króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 18. september 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 296/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 um tæknilega eftirlitsstaða fyrir skilyrðunum sem gilda um endurkaupaáætlanir og verðjöfnunarráðstafanir sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|