2011-07-06 18:44:59 CEST

2011-07-06 18:46:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Aðgerðir Lánamála ríkisins samhliða öðru gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands


Í tilkynningu Lánamála ríkisins þann 28. mars 2011 kemur fram að kaupendur
gjaldeyris í væntanlegum útboðum Seðlabanka Íslands geti selt ríkissjóði
ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á
gjaldeyriskaupum. Gjaldeyrisviðskiptin munu fara fram með milligöngu
viðskiptavaka á gjaldeyrismarkaði sem eru Arion banki, Íslandsbanki og NBI
(Landsbankinn)  Í dag tilkynnti Seðlabankinn að annað útboðið yrði haldið þann
12. júlí með uppgjöri daginn eftir.