|
|||
2012-11-07 14:27:10 CET 2012-11-07 14:28:11 CET REGULATED INFORMATION Fljótsdalshérað - FyrirtækjafréttirFjárhagsáætlun 2013 – 2016Fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 verður lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs miðvikudaginn 7. nóv.. 2012 og henni vísað til seinni umræðu sem verður þann 21. nóv. n.k.. Jafnframt er lögð fram 3ja ára áætlun fyrir árin 2014 - 2016. Helstu viðmið fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs eru: -- Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og gjalda A- og B-hluta á hverju þriggja ára tímabili. -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 verður afgangur af rekstri bæði A- og B- hluta á árinu. -- Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera á bilinu 15 - 20%. -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 verður framlegðarhlutfall A-hluta 19% og í samstæðu A og B hluta 24%. -- Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur afborgunum og vöxtum af langtímalánum. -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 mun veltufé frá rekstri nema 505 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 422 millj. kr. í samstæðu A og B hluta. Í A hluta nemur veltufé frá rekstri um 360 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 334 millj. kr. -- Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af skilgreindum tekjum. -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 verður skuldahlutfall A-hluta 191% og samstæðu A og B hluta um 250%. -- Árið 2016 verður skuldahlutfall A hluta um 155% og í samstæðu A og B hluta er áætlað að skuldahlutfallið nemi um 213%. Mikilvægt er að framagreind viðmið verði tekin alvarlega og var því lögð áhersla á það við vinnu fjárhagsáætlunar 2013 að hún yrði löguð að þeim. Slík aðlögun er liður í því að laga rekstur sveitarfélagsins að breyttum aðstæðum, treysta fjárhag þess og gera það betur í stakk búið til að mæta þörfum íbúanna í framtíðinni. Inni í skuldbindingum sveitarfélagsins að farið verði af stað með byggingu á hjúkrunarheimili og verði á árunum 2013 og 2014 varið 1.100 millj. kr. til þess verkefnis. Á móti koma framlög frá ríkisvaldinu á næstu 40 árum í formi leigugreiðslna til að mæta stofnkostnaði. Bygging hjúkrunarheimilisins er löngu orðin tímabær og búa öldruðum þar með þá umgjörð sem þeim ber og efla í leiðinni atvinnustigið á svæðinu og rekstur HSA. Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri |
|||
|