|
|||
![]() |
|||
2016-10-20 17:51:28 CEST 2016-10-20 17:51:28 CEST Síminn hf. - FjárhagsdagatalSíminn hf. - Uppgjör 3. ársfjórðungs 2016 verður birt eftir lokun markaðar 27. október 2016Kynningarfundur verður haldinn 28. október kl. 8:30 Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2016 eftir lokun markaðar þann 27. október næstkomandi. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 28. október 2016 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni: http://livestream.com/accounts/11153656/events/6524138/player Nánari upplýsingar: Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 (orri@siminn.is) Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 (oskarh@siminn.is) |
|||
|