2016-05-23 17:36:47 CEST

2016-05-23 17:36:47 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Eik fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf.: Eik fasteignafélag hf. boðar til fundar eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 12 01


Fundur Eikar með eigendum skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 12 01 verður
haldinn klukkan 9:00 þann 7. júní 2016 næstkomandi í fundarsalnum Goðafoss á
Hótel 1919, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá klukkan
8:30.

Dagskrá:

1.    Tillaga um skilmálabreytingu EIK 12 01 í átta liðum:

         a.     Um sérstakt skilyrði er varðar kaup á eignum;

         b.    Um veðgæsluaðila;

         c.   Um hlutverk veðgæsluaðila;

         d.    Um eftirlitsaðila;

         e.    Um sérstakt skilyrði er varðar niðurfærslu hlutafjár;

         f.    Um arðgreiðslur;

         g.   Um tryggingar (veðsetningu leigutekna);

         h.     Nýtt sérstakt skilyrði um samning við veðgæsluaðila og
eftirlitsaðila;



Atkvæðisréttur skuldabréfaeigenda EIK 12 01 miðast við stöðu í lok dags þann
23. maí 2016.

Skráning fundargesta, afhending atkvæðisseðla og fundargagna verður á fundarstað
frá klukkan 8:30 á fundardegi.

Tillaga Eikar fasteignafélags fyrir fundinn og umboðseyðublað er að finna í
viðhengi.



Frekari upplýsingar veita:

-      Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s.
590-2209 / 820-8980

-      Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, fyrirtaekjaradgjof@islandsbanki.is, s.
440-4000


[HUG#2014723]