|
|||
![]() |
|||
2015-03-31 18:56:58 CEST 2015-03-31 18:57:59 CEST REGULATED INFORMATION Ríkisútvarpið ohf. - FyrirtækjafréttirTilkynning frá Ríkisútvarpinu ohf.Ríkisútvarpið ohf. og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins hafa orðið sammála um skilmálabreytingu á skuldabréfum, í skuldabréfaflokki nr. RUV 00 1 sem útgefinn var 1. október 2000 af Ríkisútvarpinu. Skilmálabreytingin kveður á um að greiðsla sem koma átti á gjalddaga 1. okóber 2014, en veittur var greiðslufrestur til 31. mars 2015, og greiðslur sem koma eiga á gjalddaga 1. apríl 2015 og 1. október 2015 skulu höfuðstólsfærðar. Næsti gjalddagi verður 1. apríl 2016 og lengist lánstíminn jafnframt sem þessu nemur. |
|||
|