|
|||
2014-08-28 11:06:11 CEST 2014-08-28 11:07:11 CEST REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga - Tímabundin undanþága á skyldum aðalmiðlara á eftirmarkaði.Vegna þeirrar óvissu sem gæti skapast á íslenskum skuldabréfamarkaði í kjölfar ráðgefandi álits EFTA dómstólsins í máli nr. E-25/13 (Gunnar V. Engilbertsson gegn Íslandsbanka hf.) sem birt verður fyrir opnun skuldabréfamarkaðar í dag, hefur Lánasjóður sveitarfélaga ákveðið að veita aðalmiðlurum tímabundna undanþágu á skyldum á eftirmarkaði. Þann 28. ágúst eru aðalmiðlarar undanþegnir þeirri skyldu að leggja fram kaup- og sölutilboð í viðskiptakerfi NASDAQ OMX með tilgreindum hámarksmun eins og fram kemur í 3. gr. gildandi samnings milli aðalmiðara og Lánasjóðs sveitarfélaga vegna útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949 |
|||
|