2016-06-28 01:25:52 CEST

2016-06-28 01:25:52 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 Í 25. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 844.000 eigin hluti fyrir
70.675.800 kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími        Keyptir  Viðskipta-ve    Kaupverð      Eigin hlutir eftir
g                       hlutir            rð                           viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
22.6.2016  11:07       350.000          84,2  29.470.000               9.120.909
--------------------------------------------------------------------------------
24.6.2016  09:31       350.000          83,5  29.225.000               9.470.909
--------------------------------------------------------------------------------
24.6.2016  14:55       144.000          83,2  11.980.800               9.614.909
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals                844.000                70.675.800                        
--------------------------------------------------------------------------------

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða
endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 15. mars 2016. 

Reitir hafa nú keypt samtals 9.614.909 hluti í félaginu sem samsvarar 57,57% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 824.792.117 krónum. Reitir eiga nú samtals
11.018.129 hluti, eða 1,49% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.700.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á
aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við
hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.