|
|||
2010-09-30 17:31:01 CEST 2010-09-30 17:31:59 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirFjármögnun ríkissjóðs vegna Íbúðalánasjóðs og sparisjóðannaFyrir liggur að ríkissjóður þurfi að styrkja eiginfjárstöðu Íbúðalánasjóðs og stendur mat á fjárþörf nú yfir. Þá er einnig unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu sparisjóðanna. Gert er ráð fyrir að fjárþörf þeirra verði í takti við fyrri áætlanir. Stefnt er að því að þessum verkefnum verði lokið fyrir næstkomandi áramót. Fjármögnun verður með sambærilegum hætti og gilti um aðrar fjármálastofnanir árið 2009. Þetta mun því ekki hafa áhrif á áður tilkynnta áætlun um útgáfu markflokka ríkisverðbréfa á árinu 2010. |
|||
|