2016-05-03 23:27:55 CEST

2016-05-03 23:27:55 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Fjármál Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar.


Vísað er til tilkynninga Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar um viðræður við
kröfuhafa um endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar og stofnana hans. 

Í tilkynningu sem birt var í kauphöll þann 14. apríl sl. sagði að samkomulag
við kröfuhafa hefði ekki náðst þar sem minnihluti kröfuhafa hefði synjað
samkomulagi. Reykjaneshöfn birti síðan tilkynningu 15. apríl sl. þar sem fram
kom að óbreyttu væri fyrirséð að til greiðslufalls á skuldbindingum
Reykjaneshafnar kæmi eftir 15. apríl 2016. 

Með tilkynningu í kauphöll þann 19. apríl sl. kom fram að Reykjanesbær og
Reykjaneshöfn hefðu sammælst með fulltrúum lífeyrissjóða, sem eru kröfuhafar
Reykjaneshafnar og synjað höfðu samkomulaginu, að láta reyna til þrautar á
næstu dögum hvort grundvöllur væri fyrir samkomulagi um fjárhagslega
endurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnana bæjarins. Í tilkynningunni kom
jafnframt fram að afgreiðslu tillögu  bæjarstjórnar um tilkynningu til
eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga sem var á dagskrá
bæjarstjórnarfundar Reykjanesbæjar 19. apríl sl. hefði verið frestað til næsta
fundar bæjarstjórnar þann  3. maí nk. 

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem haldinn var í dag 3. maí var fyrri
tillaga dregin til baka en lögð fram og samþykkt eftirfarandi tillaga vegna
viðræðna við kröfuhafa um fjárhagslega endurskipulagningu: 

„Viðræður við kröfuhafa Reykjanesbæjar (A – B hluta) hafa staðið yfir sl. 18
mánuði, með vitund og samþykki Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.  
Heildarsamkomulag við alla kröfuhafa er ekki í sjónmáli og því ljóst að ekki
tekst að skila aðlögunaráætlun sem sýnir hvernig Reykjanesbær getur uppfyllt
skilyrði laga um fjármál sveitarfélaga, hvað varðar skuldaviðmið, en frestur
til þess rann út 31.mars s.l. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkir því að
tilkynna Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga að samningar séu ekki í
sjónmáli.“ 

Að framansögðu leiðir að til greiðslufalls á skuldbindingum Reykjaneshafnar
blasir við að öllu óbreyttu. 



Halldór Karl Hermannsson,

hafnarstjóri Reykjaneshafnar.